þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Prófatörn........
Þetta byrjar allt á því að maður getur ekki sofnað, smá stress komið í mann..... ekki það að vinurinn við hliðina á mér sefur alltaf fast þrátt fyrir stress, jæja hvað um það. Ég er komin með bláa bauga og ballið rétt að byrja.

Síðan eftir ágætis tíma með bókina sem sinn besta vin þá fær maður undantekningarlaust stífar herðar. Frábært!








Svona gengur þetta.... þangað til á prófdegi!!!
Adrenalínið á fullt og klukkan ekki nema 6 am og ég komin á fullt í lestur. Ég er ein af þeim sem held nefninlega alltaf að ég græði rosalega á morgunlestri svona rétt fyrir próf. Oftar en ekki endar það með

Og það þýðir bara eitt.......


Tu-tu-tu.....gangi ykkur vel skólakrakkar

12 Comments:

Anonymous Guðrún said...

oh já..fegin er ég að vera laus við þessi blessuðu próf;)..en ég er samt í argandi stressi að klára ritgerð en þetta hefst allt á endanum..merkilegt hvað maður dembir sér samt aldrei almennilega í hlutina fyrr en smá stress kemst í mann.
en vá hvað ég ætla að drekka mikinn bjór með ykkur í jólafríinu þegar öllu þessu er lokið.
hver er það annars sem skrifaði...ég hélt fyrst Silja en núna veðja ég á Hlín.
Guðrún

10:00 PM  
Anonymous Nafnlaus said...

Jamm þú veðjaðir á rangan hest:)

7:53 PM  
Anonymous Guðrún said...

ahh okí..það er auðvitað Silja sem segir oft tu tu tu;)

11:45 PM  
Anonymous Hlín said...

Þú ert fyndin :o)

5:50 PM  
Anonymous Nafnlaus said...

úff.. þetta lýsir mér svooo vel að það er rosalegt.
Talandi um stífar herðar - ég læt vöðvabólgu ekki duga, fékk allsvakalegan ríg í morgun, álagið alveg að fara með mann. Af þessum orsökum komst ég ekki á æfingu í kvöld, fúlt!

Gangi ykkur vel í prófunum og ritgerðarskrifum stelpur :)

kv. Hildur Rut

9:59 PM  
Anonymous Gerður said...

Herðu já ég kannast við þetta. Held ég sé ekki búin að sofa almennilega í svona mánuð. asskotans stress. En við bara rústum þessum prófum stelpur mínar og já ritgerðum líka... er taggi???????????? ;) og svo verður tekið klárlega heljarinnar djamm á þetta eftir próf, en ég er sammt hætt að drekka, búin að lesa allt of mikið í áfengismálum núna og ég er bara komin með ógeð af ófengi... eða hvað...

11:48 PM  
Anonymous Nafnlaus said...

hehe átti að vera áfengi en sammt fínt orð... ófengi

11:49 PM  
Anonymous Hlín said...

Nett þú ert með ófengi. Allt í lagi samt að drekka bjór og bjór. Og bjór. Og smá rauðvín. Ohh ég og mamma erum að hlusta á jólalög og gera ekki neitt, shit hvað það er nice. Hey Gerður!! Ég er að koma til þín að horfa á X-factor...jæja demit, mamma er að kalla á mig að þrífa baðið og það þarf náttúrulega að gerast NÚNA. Þar fór jólalagaafslöppunin fyrir lítið, helvítis. (Mamma er samt æði)

p.s. Ég kemst ekki á æfingu.

7:20 PM  
Anonymous Gerdó smerdó ófengi said...

já ég held að ég sé með ófengi allavega eftir allan þennan lestur úfff. En herðu gott að þú ert að koma af því að ég á nefninlega pez og svo var hann pabbi minn að koma færandi hendi með tvö stykki pitsu, þannig að kondu bara núna og fáðu pitsu í matinn með mér :) jey, en ég er sammt hætt að borða brauð en hvað er pitsa brauð???? neinei allavega ekki í dag...
Hlín ég er að bíða!!!!!

7:26 PM  
Anonymous Gerður said...

ahahah ég var að lesa færsuna aftur og ég var loksins að fatta hvað tu tu tu þýðir, Gerður stúbid..... mamma mín gerir þetta alltaf við mig áður en ég fer í próf.... en ekki sko í alvöru bara sona smá :s ennn hlín það er gráðostur á pitsunni en það er sammt líka laukur, kannski borðaru það ekki ég veit það ekki....

7:34 PM  
Anonymous Hlín said...

Borða ég eitthvað ekki?

8:03 PM  
Anonymous Hlín said...

Ég er búin að vera eins og neðsti kallinn í 3 vikur, það er æði, kemur prófunum samt ekkert við.. er reyndar komin í lag og er ekkert of sátt við það, var farin að grennast svo skemmtilega :o) een screw that, nothing lasts forever..

7:31 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Home